navigation bar Hlekkir Útsetningar Upptökur Um Braga

Námskeiðið "Lærðu að lesa nótur - fyrir fullorðna"

Skráning er nú hafin í næsta hóp námskeiðsins "Lærðu að lesa nótur - fyrir fullorðna", en næsta námskeið verður haldið í mars eða apríl 2008..

Námskeiðið er sérhannað fyrir kórfólk sem langar að læra grundvallaratriði nótnalesturs
- atriði eins og formerki, tóntegundir, lykla, nótnalengdir og svo framvegis.

Markmið námskeiðsins eru:

  • Að þátttakendur geti að loknu námskeiði lesið og skilið nótur og geti nýtt þann skilning heima hjá sér og á kóræfingum.

  • Að þátttakendur öðlist grunnskilning á píanóleik og hvernig hægt er að nýta píanóið til heimaæfinga.

  • Að þátttakendur geti æft sig heima (t.d. fyrir kóræfingar) án aðstoðar.

  • Að þátttakendur verði að námskeiði loknu fljótari að læra nýja tónlist.
  • Að þáttakendur skilji öll helstu tákn og ítölsk orð sem algeng eru í kórtónlist.

    Kennt verður á mánudags- og fimmtudagskvöldum í húsnæði Perlukafarans að Holtasmára 1 í Kópavogi og hefst námskeiðið kl. 20:00.

Námskeiðið spannar 6 kvöld og námskeiðsgjald er 20.000 krónur.
Innifalið í því eru öll námskeiðsgögn og frábært æfingahljóðfæri til eignar (sjá upplýsingar um hljóðfærið hér)

Kennari og höfundur námsefnis er Bragi Þór Valsson, en hann er með Mastersgráðu í kórstjórn og mikla reynslu af starfi með kórum um allan heim.

Til að skrá sig eða fá nánari upplýsingar má hafa samband beint við Braga í tölvupóstfangið bragi (hjá) stjornandi.com eða í síma 699-5255.

 

Nokkrar athugasemdir frá nemendum:

- "Ekki spurning að þetta hefur hjálpað heilmikið. Nóturnar líta ekki lengur út sem latína og kóræfingar verða auðveldari".
- "Ég er búin að læra fullt sem ég kunni ekki".
- "Þetta var í alla staði mjög gott námskeið."
- "Þetta veitir góða innsýn í lestur á nótum. Ég er fljótari að ná lögunum en áður".
-"Ég næ að æfa mig meira á píanó heima og get notfært mér kunnáttuna á æfingum frekar en ein heima."
- "Ég er örugglega betur búinn til að æfa mig heima og skil betur út á hvað þetta gengur".
-"Ég er örugglega betri í að skoða nótur og átta mig á takti".
- "Hefur rifjað vel upp það sem ég kunni fyrir og bætti nýju við. Hjálpar örugglega við nótnalestur."
- "Mér fannst spurningum svarað vel og skýrt. Gott námsefni".
- "Ég verð áreiðanlega mun öruggari í framtíðinni að vinna í minni rödd."