Upptökur af tónleikum sem Bragi hefur stjórnað eða haldið .
Tekið upp á tónleikum í Opperman Music Hall í Florida State University, 21. apríl 2004.
Flytjendur eru Aconcagua-hljómsveitin ásamt kór. Einsöngvarar eru Charlie Martinez og Charley Snell.
Tekið upp á tónleikum í Opperman Music Hall í Florida State University, 23. október 2003.
Flytjendur eru kór sem þau þrjú sem deildu tónleikunum (Bragi, Mihoko Tsutsumi frá Japan og Damon Dandridge frá Bandaríkjunum) smöluðu í. Einsöngvari ("prestur") í messusvörunum hans sr. Bjarna er José Rivera.
Tekið skal fram að hvert okkar fékk 12 æfingar með kórnum - hálftíma í senn (semsagt 6 klst. samtals). Upptökurnar hér eru eðlilega eingöngu af Braga parti af tónleikunum.
1 - O Iesu Mi Dulcissime eftir Anatia Donostia (6004 K)
2 - Ave Maria eftir Giuseppe Verdi (7391 K)
3 - Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar - 1 - Introitus og Gloria Patri (3644 K)
4 - Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar - 4 - Kollekta (2117 K)
5 - Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar - 10 - Exitus og Halleluja (4542 K)
6 - Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar - 11 - Blessun (1626 K)
7 - Rossignolet Gentil - úts. af Hansruedi Willisegger (3743 K)
8 - Salseo - eftir Oscar Galián (3648 K)
Tekið upp á tónleikum í Seltjarnarneskirkju 7. ágúst 2003. Þetta verk er samið fyrir 8 kórsöngvara og 4 einsöngvara, tvö píanó og eitt harmóníum.
Nú til dags er það þó yfirleitt flutt með mun fleiri söngvurum og gjarnan mjög stórum kórum. Þessi flutningur fer aftur til fortíðar með því að nota eingöngu
8 kórsöngvara og 4 sólóista, eitt píanó og eitt harmóníum. Margir af lærimeisturum Braga í Ameríku héldu að hann væri ruglaður og að það væri ekki hægt að flytja þetta svona. Hér er allavega upptakan og dæmi hver fyrir sig.
Einsöngvarar eru Anna Jónsdóttir sópran, Jóhanna Ósk Valsdóttir mezzósópran, Garðar Thór Cortes tenór og Valdimar Hilmarsson bassi.
Júlíana Rún Indriðadóttir leikur á píanóið og Jón Bjarnason leikur á harmóníum. Sr. Arna Grétarsdóttir prestur í Seltjarnarneskirkju þjónar til altaris (sem heyrist í Offertorium-kaflanum)